Umræða um veiðigjaldið stöðvuð

Umræða á Alþingi um hækkun veiðigjalds hefur verið stöðvuð. Þetta var samþykkt í atkvæðagreiðslu í þinginu rétt í þessu.
Tillaga Þórunnar Sveinbjarnardóttur, forseta Alþingis, um að stöðva umræðu um veiðigjaldsfrumvarpið var samþykkt með 34 atkvæðum gegn 20. Beitti hún þar með 71. grein þingskaparlaga.
Níu stjórnarandstöðuþingmenn voru fjarverandi atkvæðagreiðsluna.
Veiðigjaldafrumvarpið er mest rædda frumvarp í sögu þingsins.
Atkvæði verða greidd um að vísa frumvarpinu til þriðju umræðu um klukkan 12 á hádegi.