Frumvarp um veiðigjöld samþykkt

Frumvarp Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra um hækkun veiðigjalda hefur verið samþykkt á Alþingi. Þingmenn samþykktu frumvarpið í atkvæðagreiðslu á Alþingi nú á þriðja tímanum í dag.
Frumvarpið hefur verið mjög umdeilt en um ekkert mál hefur verið meira rætt í sögu Alþingis, eftir að þingið varð að einni málstofu. Umræður um frumvarpið tóku meira en 160 klukkustundir.
Síðastliðinn föstudag samþykkti stjórnarmeirihlutinn á Alþingi tillögu forseta Alþingis um að stöðva umræður með vísan í 71. grein þingskaparlaga.
Á meðal þjóðarinnar er víðtækur stuðningur við frumvarpið.


