Inga Sæland: Flotinn fer ekki í land í næstu viku

„Ég vil sérstaklega segja við strandveiðisjómennina okkar: þið eruð ekkert að fara í land með flotann ykkar í næstu viku. Það verður ekki svo,“ segir Inga Sæland í myndbandi sem hún birti á Facebook í morgun, innan úr Alþingishúsinu. Hún er að sögn RÚV að leita leiða til að halda strandveiðum áfram.
Strandveiðifrumvarpið verður ekki afgreitt á þessu þingi. Þetta varð ljóst þegar samningur ríkisstjórnarinnar og stjórnarandstöðunnar um þinglok var gerður kunnugur.
Þegar þetta er skrifað eru um 917 tonn eftir af strandveiðipottinum. Ljóst má vera, miðað við veðurspá og aflabrögð, að potturinn klárast í vikunni. Strandveiðar verða stöðvaðar nema við pottinn verði bætt.
Strandveiðimenn bíða nú milli vonar og ótta að Inga Sæland standi við stóru orðin.

