Bergey með fullfermi

Bergey VE kom til heimahafnar í Vestmannaeyjum í gærmorgun með fullfermi af fiski. Aflinn var góð blanda af þorski, ýsu og ufsa. Að sögn Jóns Valgeirssonar skipstjóra gekk veiðiferðin vel og skipið heldur brátt aftur til veiða.
„Við fórum út á fimmtudagskvöld og byrjuðum að veiða við Ingólfshöfða. Síðan færðum við okkur á Víkina. Veiðin gekk vel og aflinn var vel blandaður,“ sagði Jón og bætti við að næst verði reynt við karfa eftir löndun.
Systurskipið Vestmannaey VE er þessa dagana í mánaðar slipp á Akureyri þar sem umfangsmikið viðhald fer fram. Arnar Richardsson, rekstrarstjóri hjá Bergi–Hugin, segir um allsherjarslipp að ræða. „Það eru vélaupptektir, öxuldrættir og heilmálun svo eitthvað sé nefnt. Við gerum ráð fyrir að skipið fari niður í dag og haldi til veiða um næstu helgi,“ sagði Arnar.


