Fjarðabyggð harmar hækkun veiðigjalda

Deila:

Bæjarráð Fjarðabyggðar hefur lýst yfir þungum áhyggjum af þeirri miklu hækkun veiðigjalda sem taka á gildi um næstu áramót. Í yfirlýsingu, sem lögð var fram til kynningar frá Samtökum sjávarútvegssveitarfélaga, kemur fram að áhrifin gætu orðið veruleg á atvinnulíf, fjárfestingar og tekjugrunn sveitarfélagsins.

Samkvæmt greiningu KPMG fyrir samtökin mun gjaldahækkunin bitna sérstaklega á fyrirtækjum í Fjarðabyggð, sem gæti leitt til samdráttar í verðmætasköpun og minnkandi útsvarstekna. Bæjarráð tekur undir þá skoðun Samtakanna að hækkunin grafi undan byggðafestu og dragi úr fjárfestingum á svæðum sem reiða sig á sjávarútveg.

Í kjölfar umræðunnar var bæjarstjóra falið að funda án tafar með helstu útgerðum og stoðgreinum í sveitarfélaginu, meta áhrifin af hækkuninni og skila samantekt sem nýtist við gerð næstu fjárhagsáætlunar.

Deila: