Ísland og ESB undirrituðu viljayfirlýsingu

Ísland og Evrópusambandið hafa undirritað viljayfirlýsingu um aukið samstarf í málefnum hafsins og sjávarútvegs. Yfirlýsingin var undirrituð í gær af Hönnu Katrínu Friðriksson atvinnuvegaráðherra fyrir hönd Íslands og Costas Kadis, sjávarútvegsstjóra Evrópusambandsins.
Markmið yfirlýsingarinnar er að efla framtíðarsamstarf Íslands og ESB á grundvelli sameiginlegra gilda og hagsmuna. Áhersla er lögð á sjálfbærar fiskveiðar, verndun líffræðilegs fjölbreytileika, vísindarannsóknir og orkuskipti í sjávarútvegi og fiskeldi.
Samkvæmt yfirlýsingunni verður komið á árlegum samráðsfundi milli sjávarútvegsráðherra Íslands og sjávarútvegsstjóra ESB, þar sem rætt verður um helstu málefni hafsins. Fyrsti fundurinn er fyrirhugaður í byrjun árs 2026 og munu fundirnir fara fram til skiptis á Íslandi og innan ESB.
Í tengslum við undirritunina funduðu Hanna Katrín og Kadis um margvísleg atriði, þar á meðal bláa hagkerfið og nauðsyn samkomulags um skiptingu sameiginlegra fiskistofna í Norðaustur-Atlantshafi. Báðir lögðu þeir ríka áherslu á mikilvægi vísindalegrar ráðgjafar og samhæfðra aðgerða í alþjóðlegu samstarfi til að tryggja sjálfbæra nýtingu og vernd hafsins.
Þá voru málefni tengd líffræðilegum fjölbreytileika sérstaklega til umfjöllunar, og hvöttu bæði Ísland og ESB til staðfestingar á nýjum hafréttarsamningi Sameinuðu þjóðanna um verndun líffræðilegs fjölbreytileika utan þjóðlögsögu.
„Ísland hefur náin tengsl við ESB og við deilum gildum og hagsmunum á flestum sviðum,“ sagði Hanna Katrín Friðriksson við undirritunina. „Með þessari viljayfirlýsingu erum við að sýna gagnkvæman vilja til að tryggja sjálfbærar fiskveiðar og takast á við fjölmargar áskoranir í hafmálum.“
Costas Kadis tók í sama streng: „Ísland er sögulega náinn samstarfsaðili ESB. Í dag erum við að dýpka þetta samstarf enn frekar til að bregðast við þeim áskorunum sem bíða okkar á Norður-Atlantshafi og norðurslóðum.“
