Strandveiðimenn bíða með öndina í hálsinum

Aðeins um 215 tonn eru eftir af úhlutuðum aflaheimildum í þorski, þegar þetta er skrifað. Strandveiðimenn eru uggandi yfir stöðu mála og bíða fregna frá Hönnu Katrínu Friðriksson atvinnuvegaráðherra.
Frumvarp stjórnarmeirihlutas um strandveiðar var ekki afgreitt á Alþingi áður en þingstörfum lauk á Alþingi á mánudag. Það hefði gert ráðherra kleift að tryggja strandveiðisjómönnum 48 daga í sumar.
Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, sagði í myndbandi sem hún póstaði á Facebook fyrir helgi að strandveiðimenn yrðu ekki stöðvaðir í þessari viku. Þeri gætu treyst því.
Að óbreyttu nægja aflaheimildir ekki til að hægt verði að senda flotann á sjó á morgun, fimmtudag.