Bergey landaði karfa

Ísfisktogarinn Bergey VE landaði fullfermi í Grindavík á miðvikudag. Aflinn var mestmegnis karfi að því er fram kemur á heimasíðu Síldarvinnslunnar. Jón Valgeirsson skipstjóri lét vel af túrnum, í fréttinni. „Þetta gekk bara vel en veitt var á Fjallasvæðinu út af Reykjanesinu í bongóblíðu. Farið var út á mánudag þannig að það tók ekki langan tíma að fá í hann. Þetta var þokkalegasti karfi sem veiddist þarna,” sagði Jón.
Bergey er aftur komin til veiða.

