Félagslegi potturinn í innviðaráðuneytið

Deila:

Ákveðið hefur verið að gera breytingar á forsetaúrskurði um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands. Frá þessu greinir á vef Stjórnarráðsins.

Byggðakerfið, sem felur í sér strandveiðar, byggðakvóta o.fl., verður flutt frá atvinnuvegaráðuneytinu yfir á málefnasvið innviðaráðuneytisins, sem jafnframt er ráðuneyti byggðamála.

Breytingin var rædd og samþykkt á fundi ríkisstjórnar 16. júlí sl. Forseti Íslands hefur undirritað úrskurðinn sem hefur þegar tekið gildi.

Með breytingunni flyst ábyrgð á stjórnarmálefninu byggðakerfi, eða svokölluðu 5,3% kerfi, úr atvinnuvegaráðuneyti og yfir í innviðaráðuneyti. Undir byggðakerfið fellur almennur byggðakvóti, sértækur byggðakvóti, strandveiðar, línuívilnun, skel- og rækjubætur og frístundaveiðar.

Strandveiðar voru stöðvaðar í gær, þrátt fyrir loforð ríkisstjórnarinnar um 48 daga vertíð. Frumvarp um strandveiðar, sem tryggt hefði dagana 48, dagaði uppi í þinginu á dögunum vegna ágreinings um veiðigjaldafrumvarpið.

Deila: