Fjárfestar sýna Eldisgarði mikinn áhuga

Samherji fiskeldi hefur stækkað hlutafjárútgáfu sína vegna Eldisgarðs, nýrrar landeldisstöðvar fyrir lax á Reykjanesi, úr 125 í 210 milljónir evra vegna mikillar eftirspurnar fjárfesta. Með sambankaláni upp á 110 milljónir evra nemur heildarfjármögnun verkefnisins nú 320 milljónum evra, sem svarar til rúmlega 45 milljarða króna.
Eldisgarður verður byggður í þremur áföngum og mun fullbyggður framleiða allt að 36.000 tonn af óslægðum laxi árlega. Verkefnið er staðsett í auðlindagarði HS Orku við Reykjanesvirkjun og nýtir eingöngu endurnýjanlega orku.
Að fjármögnuninni koma innlendir og erlendir fjárfestar, þar á meðal sex íslenskir lífeyrissjóðir, framtakssjóðurinn AF3, CCap í Hollandi og Samherji sjálfur. Samherji fiskeldi hefur yfir 20 ára reynslu af landeldi og er stærsti bleikjuframleiðandi í heimi.

