Aukinn meirihluti vill ekki sjókvíaeldi

Nærri lætur að tveir þriðju hlutar þjóðarinnar séu mótfallin sjókvíaeldi. Þetta kemur fram í niðurstöðum könnunar Gallups. Sextíu prósent þjóðarinnar vill banna greinina.
Samkvæmt nýrri skoðanakönnun Gallup eru 64 prósent landsmanna neikvæð gagnvart laxeldi í opnum sjókvíum. Aðeins 13,5 prósent segjast vera jákvæð og 22 prósent taka ekki afstöðu. Könnunin var gerð dagana 3.–17. júlí og svöruðu henni 936 manns.
Munur er á afstöðu eftir kjördæmum. Í Norðausturkjördæmi eru 67 prósent andvíg sjókvíaeldi en aðeins 10 prósent jákvæð. Mestur stuðningur mælist í Norðvesturkjördæmi, þar sem 33 prósent eru jákvæð og 49 prósent neikvæð.
Andstaða mælist einnig meðal kjósenda ríkisstjórnarflokkanna. Hún mælist milli 70 og 75 prósenta í þeim hópi, þrátt fyrir að 28–35 prósent kjósenda Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Miðflokks séu jákvæðir.
Sextíu prósent svarenda vilja banna laxeldi í opnum sjókvíum alfarið, en 20,7 prósent vilja leyfa það áfram.

