Vilja tryggja sjálfbærar fiskveiðar

Deila:
„Viljayfirlýsing sem við Costas Kadis, sjávarútvegsstjóri Evrópusambandsins skrifuðum undir í síðustu viku sýnir gagnkvæman vilja okkar um samstarf til að tryggja sjálfbærar fiskveiðar og takast á við fjölmargar áskoranir tengdar hafmálum í Norður-Atlantshafi bæði í dag og til framtíðar.”
Þetta skrifar Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra á Facebook. Hún skrifar að yfirlýsingin geri ráð fyrir fyrir auknu og víðtækara samstarfi milli ESB og Íslands um ýmis atriði tengd hafinu, s.s. sjálfbærum fiskveiðum, vísindarannsóknum og verndun hafsins. Einnig sé stefnt að auknu samstarfi við verndun líffræðilegs fjölbreytileika og orkuskipti í sjávarútvegi og fiskeldi.
Deila: