Hampiðjan kaupir International Rope Braid

Hampiðjan hefur skrifað undir samning um kaup á fyrirtækinu International Rope Braid (IRB) en það fyrirtæki er staðsett á Gold Coast rétt fyrir sunnan Brisbane á austurströnd Ástralíu. Fyrirtækið var stofnað 2005 eða fyrir um 20 árum síðan. Stofnendur og eigendur IRB eru hjónin Dave og Suzy Allen og þau munu selja allan sinn hlut en styðja við yfirtökuferlið næstu mánuðina til að tryggja góða yfirfæslu á starfseminni.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.
Þar segir að gert sé ráð fyrir að rekstur IRB komi inn í samstæðureikning Hampiðjunnar frá 1. ágúst. IRB sérhæfi sig í að flétta kápur utan um ýmsar gerðir af ofurtógum og framleiðslu á slíkum tógum fyrir margs konar viðskiptavini en mest er salan tengd seglskútum og stærri vélbátum sem notaðir eru til skemmtisiglinga ásamt sölu til fyrirtækja í námuvinnslu, fiskeldi, fiskveiðum og öðrum iðnaði. „Velta IRB hefur verið stöðug undanfarin ár og um 1,7 m€ á ári og EBITDA var rúmlega 0,4 m€ á síðasta rekstrarári. Starfsmenn eru 16 talsins.”
Fyrirtækið er í aðeins 30 mínútna akstursfjarlægð frá Hampidjan Australia. Fyrirtækin hafi unnið náið saman því Hampidjan hefi útvegað IRB tóg til yfirfléttunar sem framleitt sé í Hampidjan Baltic í Litháen.
Fyrirhugað er að Hampidjan Australia og IRB verði rekin sem systurfélög næstu árin.
Þorsteinn Benediktsson, framkvæmdastjóri Hampiðjunnar í Ástralíu, segir: „Ástralía er langt frá öllu og í gegnum árin höfum við reitt okkur á flugfrakt sem er dýr frá Evrópu og tekur samt of langan tíma í mörgum tilfellum fyrir viðskiptavini okkar. Dave Allan hjá IRB hefur aðstoðað okkur oft með sérstökum fléttum fyrir tógin okkar og færni hans og vilji til að hjálpa hefur verið frábær. Dave hefur þjálfað teymið sitt vel og þau eru nú tilbúin að taka við þegar hann og Suzy hætta störfum.”

