Kallar eftir 48 dögum

Sigurjón Þórðarson, þingmaður Flokks fólksins, hvetur í aðsendri grein á Vísi til þess að strandveiðar verði tryggðar í 48 daga árlega, frá maí til ágúst, með tólf veiðidögum á mánuði. Hann segir slíkt fela í sér mikinn ávinning fyrir sjávarbyggðir án mikils kostnaðar.
Þingmaðurinn gagnrýnir einnig Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) fyrir að vinna gegn strandveiðum, þrátt fyrir að stórútgerðir skili ekki nægum veiðiheimildum í svokallaðan 5,3% byggðapott líkt og þeim beri samkvæmt lögum. Hann bendir á að stór hluti pottsins hafi færst yfir til stærri útgerða í gegnum svokallaðar „skel- og rækjubætur“.
Strandveiðar séu umhverfisvænar, byggðastyrkjandi og nýtist staðbundnum fiskistofnum vel. Að lokum fagnar hann því að samstaða sé innan ríkisstjórnarinnar um að efla strandveiðar, og að Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra muni leiða þá vinnu.

