Færeyjar taka þátt í refsiaðgerðum

Aksel Johannsen, lögmaður Færeyja, tilkynnti í dag stefnubreytingu í sjávarútvegsmálum þegar hann boðaði að Færeyjar muni taka þátt í hertum refsiaðgerðum Evrópusambandsins, Noregs og Íslands gegn Rússlandi. Aðgerðirnar, sem eru hluti af nýjasta refsiaðgerðapakka ESB frá því í maí, beinast sérstaklega gegn svokölluðum skuggaflota Rússa sem meðal annars hefur verið nýttur til olíuflutninga.
Johannsen sagði allar refsiaðgerðir sem ESB hefði lagt á Rússland vegna stríðsins í Úkraínu vera í gildi í Færeyjum. Færeyska landstjórnin hyggst nú biðja lögþingið um víðtækari heimildir til að innleiða aðgerðirnar að fullu.
Ákvörðunin felur í sér mikilvæga stefnubreytingu þar sem Færeyjar hafa áratugum saman átt náið samstarf við Rússa á sviði sjávarútvegs og reglulega endurnýjað samninga við þá, jafnvel eftir innrásina í Úkraínu.