Skora á ráðherra vegna strandsiglinga

Byggðarráð Skagafjarðar hefur skorað á Eyjólf Ármannsson innviðaráðherra að hraða vinnu nýskipaðs starfshóps sem ætlað er að leiða samtal við hagaðila um möguleika strandsiglinga og gera tillögur til úrbóta.
Í bókun ráðsins segir að brýn þörf sé á að bregðast hratt við breytingum sem eru í farvatninu, þar sem Eimskip hefur tilkynnt að félagið hyggist hætta strandsiglingum til hafna á Vestfjörðum og Norðurlandi. Sú ákvörðun kemur í kjölfar lokunar kísilverksmiðju PCC á Bakka við Húsavík.
Byggðarráðið bendir á að breytingin muni valda talsverðu tekjutapi hjá Skagafjarðarhöfnum, auk þess sem hún kalli á aukið álag á þjóðvegakerfið. Samkvæmt ráðinu mun um 11.500 tonn af varningi fara landleiðina til og frá Skagafirði í stað sjóleiðarinnar, sem muni valda enn frekara sliti á þegar óburðugu og vanfjármögnuðu vegakerfi landsins.
„Það er mikið hagsmunamál fyrir fyrirtæki og íbúa á landsbyggðinni að vöruflutningar séu sem hagkvæmastir og hafi um leið sem minnst neikvæð umhverfisáhrif,“ segir jafnframt í bókun byggðarráðs.


