Björgúlfur EA í slipp

Deila:

Togarinn Björgúlfur EA 312 hefur undanfarið verið í flotkví Slippsins á Akureyri þar sem farið var í ýmsar uppfærslur og reglubundið viðhald. Að sögn Kristjáns Salmannssonar, skipstjóra, er sumarið ákjósanlegur tími fyrir slíkar framkvæmdir. Þetta kemur fram á vef Samherja.

Botn skipsins var hreinsaður og málaður, botnstykkjum skipt út og farið yfir almennt ástand skipsins. Kristján hrósar þjónustu Slippsins og annarra samstarfsaðila sem koma að verkefninu fyrir mikla fagþekkingu. Hann nefnir sérstaklega mikilvægi góðs undirbúnings, enda séu slík viðhaldsverkefni umfangsmikil teymisvinna. Þó flestir úr áhöfninni séu í sumarfríi hafi vélstjórarnir verið um borð vegna nauðsynlegs eftirlits.

Björgúlfur EA 312 var smíðaður í Cemre skipasmíðastöðinni í Tyrklandi og kom nýr til landsins í júní 2017. Kristján hefur verið skipstjóri frá upphafi og segir hann skipið vera afar vel útbúið og vinnuaðstæður góðar um borð. Hann segist þó ætla að sitja yfir fyrsta túrnum eftir sumarviðhaldið en mun fylgjast með brottförinni frá bryggjukantinum þegar skipið heldur til veiða.

Deila: