Blængur með góðan afla

Deila:

Í gær var landað úr frystitogaranum Blængi NK í Neskaupstað. Aflinn nam um 630 tonnum og verðmætið var um 413 milljónir króna.

Bjarni Ólafur Hjálmarsson skipstjóri segir á vef Síldarvinnslunnar að túrinn hafa gengið afar vel.

Veiðiferðin tók fjórar vikur og var veiðin jöfn og góð allan tímann. Mest var veitt á Vestfjarðamiðum og suðaustan við landið, þar sem ýsa, karfi, þorskur, ufsi og grálúða veiddust. Veðrið var sérstaklega gott alla veiðiferðina, en Blængur mun fara aftur á veiðar í kvöld í þriggja vikna túr áður en skipið fer í slipp.

Deila: