Boða drónaeftirlit

Deila:

Eftirlitsmenn Fiskistofu munu fljúga ómönnuðum loftförum til eftirlits í ágúst og viljum við minna á að allar upptökur eru skoðaðar vel og fiskur sem fer fyrir borð er tegundargreindur. Frá þessu greinir á vef Fiskistofu. Þar  segir sérstaklega að mikilvægt sé að sjómenn og útgerðaraðilar þekki vel reglur og lög um stjórn fiskveiða.

Nokkur atriði til að huga að:

  • Óhætt er að sleppa hlýra og ef hann er lífvænlegur.

  • Skylt er sleppa beinhákarli, háfi og hámeri, ef lífvænleg.

  • Heimilt er að sleppa lífvænlegri tindaskötu.

  • Sleppa á lifandi grásleppu sem fæst í þorskfisknet.

  • Heimilt er að sleppa lífvænlegum rauðmaga við hrognkelsaveiðar.

  • Komi lúða um borð í veiðiskip sem meðafli á umsvifalaust að sleppa lífvænlegri lúðu.

  • Við línuveiðar skal sleppa allri lúðu með því að skera á taum línunnar.

  • Við handfæra- og sjóstangaveiðar á að losa lúðu varfærnislega af krókum eða skera á lykkju slóðans áður en lúða kemur um borð.

  • Ganga skal úr skugga um að aflinn sé lífvænlegur áður en honum er sleppt.

  • Skrá á tegund alls afla sem sleppt er ásamt áætlaðu magni í kílóum með rafrænum hætti í afladagbók eða snjallforrit.

„Fiskistofa hvetur útgerðaraðila til að fræða áhafnir um meðferð afla og ítrekar að umgengi við afla þarf að stuðla að lífvænleika hans ef ætlun er að nýta framangreindar undanþágur,” segir á vefnum.

Deila: