Flogið yfir síldarsmuguna – myndband

Áhöfnin á TF-SIF, eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar, hefur stundað öflugt eftirlit á hafsvæðinu umhverfis Ísland undanfarnar vikur. Þetta kemur fram í færslu frá Landhelgisgæslunni á Youtube.
„ Í gær var farið í eftirlit austur af landinu og jafnframt flogið yfir Síldarsmuguna þar sem 14 íslensk fiskiskip voru að veiðum. Alls voru rúmlega 40 skip á svæðinu þegar TF-SIF flaug þar yfir, þar af voru 3 grænlensk og 25 rússnesk, bæði fiskiskip og þjónustuskip,” segir enn fremur í færslunni.
Myndband frá fluginu má sjá hér að neðan.

