Makrílveiðar ganga misjafnlega í Smugunni

Deila:

Makrílveiðin í Smugunni gengur þessa dagana nokkuð misjafnlega en stundum berast góð skot inn á milli. Skipin sem þar eru við veiðar starfa í samstarfi, og eiga Síldarvinnsluskipin þrjú – Barði NK, Beitir NK og Börkur NK – gott samstarf við Samherjaskipin Vilhelm Þorsteinsson EA og Margréti EA. Afla allra skipanna er dælt um borð í eitt skip sem flytur síðan aflann til löndunar í Neskaupstað.

Á mánudaginn varð mjög góður afli þegar samstarfsskipin fjögur fengu samtals um 1000 tonn í fáeinum holum, sem hvert gáfu 200 til 320 tonn. Afla skipanna var dælt um borð í Vilhelm Þorsteinsson EA, sem kom til Neskaupstaðar í gærkvöldi með 1420 tonn af makríl. Eftir þetta góða skot hefur veiðin verið rólegri og er nú verið að dæla afla skipanna um borð í Beiti NK.

Í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar gengur vinnsla ágætlega en samkvæmt Geir Sigurpáli Hlöðverssyni rekstrarstjóra fylgir vinnslu á Smugumakríl meiri áskorun en makríl sem veiðist í íslenskri lögsögu. Smugumakríllinn er minni og viðkvæmari og því erfiðari í vinnslu. Meðalþyngd fisks úr íslenskri lögsögu var um 550 grömm en Smugumakríllinn er um 450 grömm að meðaltali. Það sem af er vertíðinni hefur Síldarvinnslan tekið á móti um 12.500 tonnum af makríl til vinnslu og nú bætast 1420 tonn við úr Vilhelm Þorsteinssyni.

Þrátt fyrir minni meðalþyngd á makrílnum úr Smugunni hefur þó komið á land nokkuð stór fiskur og sá stærsti á vertíðinni til þessa var 1,52 kg að þyngd og 52 cm að lengd, sannkallaður risamakríll.

Deila: