Skora á ráðherra að skoða dragnótaveiðar

Deila:

Byggðaráð Skagafjarðar hefur samþykkt að skora á atvinnuvegaráðherra að taka til skoðunar ákvörðun um leyfi til dragnótaveiða á grunnslóð innanverðs Skagafjarðar. Málið var tekið upp á fundi byggðaráðs í kjölfar erindis frá Drangey – smábátafélagi Skagafjarðar sem lýst hefur yfir þungum áhyggjum af veiðum stórra togskipa á svæðum sem áður höfðu verið friðuð fyrir dragnótaveiðum.

Frá árinu 2010 til nóvember 2017 giltu reglur sem lokuðu innri hluta Skagafjarðar, milli Ásnefs og Þórðarhöfða, fyrir dragnótaveiðum. Reglugerðin var sett til að vernda lífríki og tryggja sjálfbærar veiðar smábáta. Atvinnuvegaráðherra ákvað hins vegar árið 2017 að fella bannið úr gildi án þess að taka tillit til eindreginna mótmæla sveitarfélagsins.

Byggðaráð bendir á að veiðar stærri skipa á þessu svæði hafi haft neikvæð áhrif á starfsemi minni báta, sem eiga erfitt með að keppa við afkastagetu þeirra stærri. Þá sé hætta á að togveiðarnar hafi slæm áhrif á lífríki og fiskistofna svæðisins.

Í áskorun sinni leggur byggðaráð áherslu á mikilvægi þess að ákvarðanir um nýtingu auðlinda við strendur landsins byggist á traustum vísindalegum grunni og samráði við bæði sérfræðinga og hagsmunaaðila.

Byggðaráðið krefst þess að ráðherra hefji faglega og gagnsæja umræðu um framtíðarskipulag dragnótaveiða og tryggi að sjálfbær sjónarmið ráði för.

Deila: