Minnsti þéttleiki makríls síðan mælingar hófust

Deila:

Rannsóknaskipið Árni Friðriksson lauk þátttöku þann 25. júlí í árlegum alþjóðlegum uppsjávarvistkerfisleiðangri í Norðurhöfum. Bráðabirgðaniðurstöður leiðangursins sýna að þéttleiki makríls í íslenskri landhelgi er nú sá minnsti sem mælst hefur frá upphafi þessara rannsókna árið 2010.

Í leiðangrinum, sem stóð yfir í 26 daga kringum Ísland og Jan Mayen, voru teknar 56 togstöðvar, þar af 46 fyrirfram ákveðnar yfirborðstogstöðvar, og sigldar um 5000 sjómílur. Makríll mældist á aðeins 13 af 46 yfirborðstogstöðvum sem allar voru austan við landið. Heildarafli makríls var aðeins 97 kg eða samtals 164 fiskar, með meðalþyngd 590 grömm og meðalstærð 40 cm.

Þessi niðurstaða gefur vísbendingar um breyttar aðstæður fyrir makrílinn í íslenskum hafsvæðum. Nánari greining á gögnum frá Íslandi ásamt skipum frá Noregi, Færeyjum og Danmörku verður birt undir lok ágúst.

 

Deila: