Ákærðir fyrir að skemma sæstrengi

Deila:

Saksóknari í Finnlandi hefur ákært þrjá úr áhöfn olíuskipsins Eagle S fyrir skemmdarverk á sæstrengjum í Eystrasalti í desember. RÚV greinir frá þessu. Þar segir að skipstjóri, fyrsti og annar stýrimaður séu sakaðir um að hafa dregið akkeri skipsins eftir sjávarbotninum 90 kílómetra leið og skemmt fimm sæstrengi milli Finnlands og Eistlands. Með því hafi þeir truflað verulega fjarskipti.

Grunur leikur á að skipið sé hluti af rússneska skuggaflotanum. Þeir ákærður neita sök og telja Finna ekki hafa lögsögu í málinu.

Deila: