Gullver aftur til veiða

Deila:

Ísfisktogarinn Gullver NS kom til heimahafnar á Seyðisfirði í gær eftir að hafa verið í réttan mánuð á Akureyri þar sem ýmsum viðhaldsverkefnum í skipinu var sinnt.

Frá þessu segir á vef Síldarvinnslunnar.

Það var Slippurinn sem sá að sögn um viðhaldsvinnuna. „Strax og komið var til Seyðisfjarðar voru veiðarfæri og annað nauðsynlegt tekið um borð og síðan haldið til veiða. Hjálmar Ólafur Bjarnason skipstjóri taldi líklegast að haldið yrði suður fyrir land og leitað að ýsu. Stefnt er að því að Gullver landi á fimmtudag,” segir á vefnum.

Deila: