Samherji hagnaðist um 6,3 milljarða

Deila:

Rekstrarhagnaður Samherja hf. nam 6,3 milljörðum króna á árinu 2024 og dróst saman um 1,8 milljarða króna á milli ára. Hagnaður þegar tekið hefur verið tillit til afkomu hlutdeildarfélaga og fjármagnsliða, nam 6,8 milljörðum króna eftir skatta en var 8,7 milljarðar króna á árinu 2023.

Þetta kemur fram á vef Samherja en þar er vísað í ársreikning félagsins. Hann var lagður fram og samþykktur á síðasta aðalfundi. Haft er eftir Baldvini Þorsteinssyni forstjóra að botnfiskveiðar og vinnsla hafi almennt gengið vel á árinu og að verð á afurðum hafi verið gott.

„Skipafloti félagsins er vel búinn og valinn maður í hverju rúmi. Sama gildir um landvinnslurnar okkar sem hafa vakið alþjóðlega athygli fyrir framúrskarandi tæknilausnir og góðan aðbúnað starfsfólks.

Í uppsjávarveiðum litast afkoman helst af því að engin loðna var veidd á árinu sem voru eðlilega mikil vonbrigði, bæði fyrir atvinnugreinina sjálfa og þjóðarbúið í heild. Við vonumst eftir því að geta átt gott samstarf við stjórnvöld til að öðlast betri skilning á orsökum þess mikla samdráttar sem hefur orðið í loðnustofninum á undanförnum árum.

Hækkun veiðigjalda felur í sér auknar byrðar á sjávarútveginn og mun þýða að félagið þarf að líta í öll horn í rekstrinum til að geta staðið undir aukinni gjaldtöku en á sama tíma haldið áfram að fjárfesta í innviðum og aukinni verðmætasköpun,“ segir Baldvin.

Samherji seldi afurðir fyrir 66 milljarða króna á síðasta ári og jukust sölutekjur vegna afurða um tæplega 6% frá árinu á undan. Hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) nam 9,2 milljörðum króna og dróst saman um tæplega 18% frá árinu á undan. Tekjur af áhrifum hlutdeildarfélaga námu 1,8 milljörðum króna. Tekjur vegna hlutdeildarfélaga lækka nokkuð milli ára sem skýrist af lakari afkomu Síldarvinnslunnar hf. þar sem engin loðnuvertíð var á árinu 2024. Eignir Samherja hf. í árslok 2024 námu 115,8 milljörðum króna og eigið fé var 83,5 milljarðar króna.

Eiginfjárhlutfall félagsins í árslok var 72% en var 73% í árslok 2023. Eiginfjárhlutfall hefur haldist hátt undanfarin ár sem endurspeglar miklar fjárfestingar í kjarnastarfsemi og traustan efnahag félagsins.

Á árinu 2024 voru að meðaltali 789 ársverk hjá Samherja hf. en þau voru 722 á árinu 2023. Launagreiðslur á árinu námu samtals 9,9 milljörðum króna. Fjölgun ársverka skýrist af því að 2024 var fyrsta heila árið þar sem starfsmenn erlendra sölufélaga voru hluti af samstæðu Samherja eftir að dótturfélagið Ice Fresh Seafood ehf. fjárfesti í þessum fyrirtækjum haustið 2023. Þá voru ráðnir nýir starfsmenn til Samherja fiskeldis ehf. á árinu vegna aukinna umsvifa þess félags.

Fjárhæðir í rekstrarreikningi ársreiknings eru umreiknaðar úr evrum í íslenskar krónur á meðalgengi ársins 2024 og upphæðir í efnahagsreikningi á lokagengi ársins.

Deila: