Yfirlýsing frá stjórn Drangeyjar

Stjórn Drangeyjar – smábátafélags Skagafjarðar – hefur í yfirlýsingu brugðist við skrifum og yfirlýsingum forstjóra FISK Seafood ehf. um dragnótarveiðar í firðinum í sumar.
Í yfirlýsingunni segist smábátafélagið ánægt með þá fádæma ýsugengd sem verið hefur á Skagafirði og nærliggjandi miðum á þessu ári og telur jákvætt að stofninn sé vel nýttur og aflinn landað sem mest á Sauðárkróki. Hins vegar snúist gagnrýni félagsmanna ekki um sjálfar veiðarnar heldur staðsetningu þeirra.
Félagið bendir á að dragnótarveiðar hafi verið stundaðar upp í fjörum utan ósa Héraðsvatna, á vel þekktum hrygningarsvæðum þorsks, auk þess að hafa farið fram á fáum þorskveiðistöðum færanbáta innan eyja. Á þessum stöðum hafi áður ekki verið hægt að stunda dragnótarveiðar.
Drangey segist styðja allar rannsóknir á fiskistofnum og lífríki fjarðarins og tekur undir ályktun sveitarstjórnar Skagafjarðar um málið. Félagið bendir á að rannsókn Hafrannsóknastofnunar frá 2008, þar sem fjögur tog voru tekin með lítilli tveggjabyrða flatfiskadragnót, geti ekki talist fullnægjandi grundvöllur fyrir þeirri ályktun að núverandi stór dragnót skipa hafi engin áhrif á lífríkið.
Minnt er á að Hafrannsóknastofnun hafi árið 1972 lagt til að allar togveiðar með botntroll og dragnót yrðu bannaðar innan 12 mílna landhelginnar við allt Norðurland.
Yfirlýsingin í heild:
Að gefnu tilefni og með vísan til skrifa og yfirlýsinga forstjóra FISK Seafood ehf. um dragnótarveiðar vill stjórn Drangeyjar – smábátafélags Skagafjarðar taka eftirfarandi fram:
1. Félagar í Drangey fagna að sjálfsögðu þeirri fádæma ýsugengd sem verið hefur á Skagafirði og nærliggjandi miðum á þessu ári og telur afar jákvætt að þessi stofn sé vel nýttur og afla úr firðinum landað sem mest á Sauðárkróki.
2. Gagnrýni félagsmanna á þær dragnótarveiðar sem hafa verið stundaðar á firðinum í sumar snýst eingöngu um hvar þessar veiðar hafa farið fram. Annars vegar upp í fjörum utan ósa Héraðsvatna á mjög vel þekktum hrygningarsvæðum þorsks og hins vegar á þeim tiltölulega fáu þorskveiðistöðum færabáta sem er að finna innan eyja og ekki var hægt að veiða með dragnót á fyrr á árum.
3. Félagið styður allar rannsóknir sem gerðar eru á fiskistofnum og öðru lífríki á firðinum og tekur því undir ályktun sveitarstjórnar Skagafjarðar um þessar veiðar. Rannsókn Hafrannsóknastofnunar frá því í október 2008 þar sem fjögur tog voru tekin út af Fagranesi með tiltölulega lítilli tveggjabyrða flatfiskadragnót er að áliti félagsins vart þess eðlis að draga megi þá ályktun af, að veiðar með þeim risadragnótum sem nú eru notaðar á stærri skipum hafi engin áhrif á lífríki fjarðarins. Því skuli slíkar veiðar heimilar án svæðistakmarkana á öllum firðinum. Minna má á að þessi sama stofnun lagði til árið 1972 að allar togveiðar með botntroll og dragnót yrðu bannaðar innan 12 mílna landhelginnar fyrir öllu Norðurlandi.
Skagafirði 10. ágúst 2025
Magnús Jónsson formaður Drangeyjar – smábátafélags Skagafjarðar

