Óskar Hauksson ráðinn til First Water

Landeldisfyrirtækið First Water hefur ráðið Óskar Hauksson í stöðu fjármálastjóra fyrirtækisins. Hann lét af störfum hjá Símanum, eftir 14 ár, í vikuni. Óskar vann áður hjá bandaríska fjárfestingabankanum Bear Sterns, Landsbankanum og Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis.
First Water vinnur nú að umfangsmikilli uppbyggingu við Þorlákshöfn.
„Framundan er áframhaldandi uppbygging á háttæknilandeldi í Þorlákshöfn og sókn á erlenda markaði. Ég hlakka til að leggja mitt af mörkum í þessu einstaka verkefni sem er stærsta einkaframkvæmd Íslandssögunnar,“ segir Óskar í yfirlýsingu.
Eggert Þór Kristófersson, forstjóri First Water, segir mikinn feng að fá jafn reyndan mann og Óskar til liðs við félagið. „Reynsla hans og þekking mun styrkja félagið í áframhaldandi vexti og auka slagkraft þess enn frekar,“ segir hann.
