Eldislaxar veiðast í Haukadalsá

Haukadalsá er full af eldislöxum, ef marka má fregnir frá Icelandic Wildlife Fund. Á Facebook greina samtökin frá því að neðsti veiðistaður árinnar sé fullur af eldislaxi. Ingólfur Ásgeirsson, stofnandi Íslenska náttúruverndarsjóðsins, náði þremur eldislöxum í nótt.
,,Klukkan er að ganga 5 að morgni hér við Hauku. Skelfilegir hlutir i gangi hér. Búnir að ná 3 eldislöxum i einum hyl. Náðum ekki nærri öllum. Eru klárlega á annan tug i þessum eina hyl sem við höfum séð i nótt, Símastreng, sem er neðsti veiðistaður Hauku. Ómögulegt að segja hvað margir eldislaxar leynast i ánni, klárlega tugir. Vonandi ekki hundruðir. Ómögulegt að segja. Hryllingur að sjá! Verður að þræða alla ána. Og árnar í Dölum. Þetta er neyðarástand!” er haft eftir honum.
Engin tilkynning hefur borist um slysasleppingu úr sjókvíaeldum að undanförnu en að sögn sáust fjölmargir eldislaxar í neðsta veiðistað árinnar, þó aðeins nokkrir hafi náðst.
Samtökin greina einnig frá því að Jóhannes Sturlaugsson fiskifræðingur hafi unnið að því í nótt að ná eldislaxi úr ánni.
,,Þetta er skelfilegt ástand. Ekkert af sjókvíaeldisfyrirtækjunum kannast við að hafa misst frá sér eldislax. Það segir allt sem segja þarf. Þau hafa ekki hugmynd um hvað er í gangi í netapokunum,” segja samtökin á Facebook.
