Forstjórinn lætur af störfum

Roy-Tore-Rikardsen og stjórn eldisfyrirtækisins Kaldvíkur hafa komist að samkomulagi um starfslok forstjórans. Hann lætur þegar í stað af störfum. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá félaginu. Þar segir að Vidar Aspehaug verði starfandi forstjóri tímabundið.
„Við erum þakklát fyrir framlag Roy-Tore á því umbreytingartímabili sem verið hefur eftir starfslok fyrrverandi forstjóra og stofnanda fyrirtækisins,“ er haft eftir Asle Rønning, stjórnarformanni Kaldvíkur.
Kaldvík lauk 40 milljarða króna endurfjármögnun fyrr í sumar.
