Fjarstýrðir kafbátar fyrir fiskeldi

Deila:

Slippurinn Akureyri er með umboð fyrir Deep Trekker, kanadíska neðansjávar­dróna – eða fjarstýrða kafbáta, eins og við köllum þá. Við höfum kynnt búnaðinn á vörusýningum undanfarin ár og fengið frábærar viðtökur. Nokkrir aðilar hafa þegar fjárfest í þessum lausnum og hefur notagildið sannað sig með glæsilegum árangri. Greint er frá þessu á vef Slippsins. Þar er haft eftir Valdemar Karli Kristinssyni verkefnastjóra að Deep Trekker stuðli að auknu öryggi og hagkvæmni í rekstri fiskeldisfyrirtækja.

„Með Deep Trekker kafbátum færðu fullkomið yfirlit yfir ástand neta og festinga án þess að þurfa að senda kafara niður. Þú sérð strax hvað þarf að laga eða viðhalda, sem sparar bæði tíma og kostnað og eykur öryggi,“ segir hann.

Með kafbát frá Deep Trekker er hægt að framkvæma reglulegar og nákvæmar skoðanir á netum og tryggja að festingar séu öruggar og þar með tryggja burðarþol og öryggi mannvirkja. Þetta er sérstaklega mikilvægt við uppsetningu nýrra kvíar og til að uppfylla kröfur eftirlitsaðila.

Sjá nánar hér.

Deila: