„Megum aldrei sofna á verðinum“

Deila:

Gauti Þór Grétarsson hefur verið ráðinn öryggisstjóri Samherja og tekur við starfinu af Jóhanni Sævarssyni, sem gegndi því í níu ár. Hann segir að fyrirtækið standi framarlega í öryggis- og vinnuverndarmálum og að meginmarkmiðið sé að tryggja öryggi starfsmanna, efla heilbrigði þeirra og draga úr fjarveru vegna slysa og heilsufarsvandamála. Frá þessu er greint á vef Samherja.

Gauti Þór hefur síðustu ár starfað hjá Norðurorku sem verkefnastjóri öryggismála og framkvæmda og áður sem slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður. Hann leggur áherslu á að öryggismál séu samstarfsverkefni þar sem eigendur, stjórnendur og starfsfólk rói í sömu átt.

Á hverri starfsstöð Samherja starfar öryggisnefnd sem skipuleggur aðgerðir, sér um fræðslu og annast málefni tengd aðbúnaði og öryggi. Gauti Þór segir að fylgst sé vel með nýjungum í öryggis- og vinnuverndarmálum og að slíkar lausnir séu innleiddar þegar þær henta.

„Ég hlakka til að vinna með öflugu fólki, það er greinilegt að öryggismenningin hérna er á háu stigi,“ segir Gauti Þór Grétarsson nýr öryggisstjóri Samherja í fréttinni.

Deila: