Reistu grjótgarð þvert yfir Miðfjarðará

Veiðifélagið í Miðfjarðará brást við fregnum af eldislaxi í Haukadalsá með því að reisa grjótgarð í ánni um helgina. Með því freistar veiðifélagið þess eldislax komist ekki upp í ána. Sprækir villtir laxar eigi hins vegar auðvelt með að komast yfir slíka hindrun. Garðurinn var reistur að frumkvæði Veiðifélags Miðfjarðarár.
„Við áttum þetta grjót og bara söfnuðum saman mannskap þarna með vélar og vagna og beltagröfu og grjótið var tiltækt og það voru allir boðnir og búnir að koma að þessu. Það hafa allir hér í sveit, allavegana, skilning á hver staðan er og hver niðurstaðan væri ef eldislax tæki hérna yfir,“ er haft eftir Magnúsi Magnússyni, formanni veiðifélagsins á RÚV.
Enn er beðið eftir niðurstöðum um uppruna þeirra eldislaxa sem veiddust í Haukadalsá.


