Segja stöðu þorsksins sterka við Ísland

Deila:

Hafrannsóknastofnun hefur nýverið lagt til að leyfilegur þorskafli á næsta fiskveiðiári verði 204 þúsund tonn, sem er 4% lækkun frá fyrra ári. Þrátt fyrir það telja sérfræðingar að staða þorskstofnsins við Ísland sé almennt sterk í sögulegu samhengi. Um þetta fjalla Jónas Páll Jónasson og Bjarki Þór Elvarsson, starsmenn Hafró, í grein sem birtist fyrr í sumar á vef Fiskifrétta.

Í  grein sinni vísa þeir meðal annars í grein um þorskveiða við Ísland allt frá landnámi til vorra daga. Höfundarnir eru Steven E. Campana og félagar. Þar kemur fram að þorskstofninn hafi við landnám verið yfir fimm sinnum stærri en hann var um síðustu aldamót. Veiðar náðu hámarki árið 1933, þegar yfir hálf milljón tonna var veidd, en óheft sókn olli mikilli rýrnun. Hrygningarstofninn féll úr 700 þúsund tonnum árið 1955 niður í einungis 115 þúsund tonn árið 1993.

Í grein Bjarka og Jónasar segir að frá því tekið var upp markvissara fiskveiðistjórnunarkerfi á tíunda áratugnum hefur stofninn tekið við sér. Árið 2017 mældist hann 525 þúsund tonn og aflinn hefur haldist í takti við ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar. Aflabrögð hafa batnað og fiskurinn nær að vaxa lengur áður en hann er veiddur.

Þróunin hefur þó verið mjög ólík eftir heimshlutum. Í Norður-Ameríku hrundu stærstu þorskstofnarnir um miðja síðustu öld og lítið hefur náðst að byggja þá upp aftur. Í Evrópu náðu veiðar hámarki 1969 en hafa minnkað mikið síðan, þó að Barentshafið standi upp úr sem eitt helsta þorskveiðisvæði heims. Þar hefur þó dregið úr á síðustu árum og ráðgjöf fyrir 2025 gerir ráð fyrir minnsta afla í yfir 35 ár.

Við Austur-Grænland hafa veiðar aukist síðasta áratug og rannsóknir sýna að íslenskur þorskur fer þar í fæðugöngur. Á hinn bóginn er staða þorskstofns við Færeyjar veik, undir varúðarmörkum og með hárri veiðidánartíðni.

Í greininni kemur fram að nær allur þorskafli heims í dag komi úr tveimur stofnum – þeim íslenska og Barentshafsstofninum. Reynslan sýni að ofveiði leiði óhjákvæmilega til hruns stofna. Þrátt fyrir lækkun ráðgjafar standi íslenski þorskstofninn vel, með sterkan hrygningarstofn og heilbrigða aldursamsetningu.

Sjá greinina hér.

Deila: