Breki með góðan afla

Ísfisktogarinn Breki VE kom að landi í liðinni viku eftir fyrsta túrinn að loknu sumarfríi áhafnarinnar. Aflabrögð voru góð og var uppistaðan aflans djúpkarfi, ufsi og gullkarfi. Frá þessu er greint á vef Vinnslustöðvarinnar.
„Túrinn gekk mjög vel,“ segir Bergur Guðnason skipstjóri í frétt á heimasíðu félagsins. „Þetta var fyrsti túrinn eftir sjö vikna sumarfrí, en áhöfnin var fljót að detta í gírinn aftur.“
Veitt var aðallega vestur í Skerjadýpi og á svæði sem kallað er Fjöllin, þar sem voru ágæt aflabrögð.
„Við lögðum áherslu á djúpkarfa, ufsa og gullkarfa – og það reyndist vera uppistaðan í aflanum,“ segir Bergur í samtali við Vinnslustöðvarvefinn. Breki hélt strax til veiða næsta dag.
