Fundu sex eldislaxa í Haukadalsá

Deila:

Norsku kafararnir sem kembt hafa Haukadalsá síðustu daga, í leit að eldislöxum, fundu sex slíka í ánni. Þeir hafa lokið leit sinni en alls sáu þeir um 640 laxa í ánni. Þeir drápu fjóra eldislaxa af sex en tveir sluppu frá þeim.

Fram hefur komið í fjölmiðlum að laxarnir sex hafi ekki verið jafn stórir, sem bendir til fleiri en einnar slysasleppingar.

Deila: