Útkall: Merki frá smábát hvarf

Björgunarskipið Hannes Þ. Hafstein var í nótt kallað út á hæsta forgangi vegna smábáts sem dottið hafði úr ferilvöktun hjá vaktstöð siglinga á Reykjaneshrygg. Báturinn var um 40 sjómílur suðvestur af Reykjanestá þegar hann hvarf.
Í ljós kom að bilun hafði komið upp í rafkerfi bátsins, að því er Slysavarnafélagið Landsbjörg greinr frá í tilkynningu. Þar segir enn fremur: „Var áhöfnin á Hannesi beðin um að halda í átt að bátnum til þess að fylgja honum í land. Þegar þetta er skrifað eiga bátarnir um klukkutíma siglingu eftir í Sandgerði.“
