Helix-kaðall með ofurkjarna

Hampiðjan hefur kynnt nýjan Helix kaðal með Robus ofurkjarna sem notaður er í Gloria flottrollum félagsins. Samkvæmt tilkynningu frá fyrirtækinu gerir nýi kaðallinn það að verkum að trollin opnast hraðar og halda betur lögun í beygjum. Þar sem Robus-kjarninn veitir sama styrk í grennri kaðli en áður náðist, minnkar togviðnám og toghraði eykst.
Slitþolspróf á rannsóknarstofu Hampiðjunnar Baltic í Litháen sýna að hægt er að nota grennri kaðla, til dæmis 12 mm í stað 16 mm, sem dregur úr viðnámi í sjó. „Helix Robus kaðallinn hefur opnað nýjar víddir í hönnun á Gloríu flottrollum,“ segir Einar Skaftason, veiðarfærahönnuður hjá Hampiðjunni, og bendir á að léttari troll séu sérstaklega mikilvæg í makríl- og kolmunnaveiðum þar sem hraði og orkunotkun skipta miklu máli.
Samkvæmt fyrirtækinu hefur nýi kaðallinn þegar sannað sig í makríltrollum og prófanir á kolmunnatrollum með sömu tækni lofa góðu. Með samspili Helix-þanþols og styrks Robus má nú tala um „ofurþantóg“, segir í tilkynningu Hampiðjunnar.

