Landvinnsla á fullt skrið

Deila:

Vinnsla hófst í morgun að nýju í fiskvinnslu Samherja á Dalvík eftir sumarleyfi starfsfólks, en hjá ÚA á Akureyri var starfsemi hafin í júlí. Frá þessu segir á vef Samherja.

Jón Sæmundsson framleiðslustjóri segir þar að vinnslan hafi farið strax af stað með fullum krafti og unnin verði ýsa fyrstu dagana eftir löndun togaranna Björgúlfs og Harðbaks í gær.

Næsti togari kemur að sögn til löndunar fyrir mánudag og er því tryggt að halda uppi góðri þjónustu við erlenda kaupendur.

Jón bendir á að sumarhléið sé jafnframt notað til viðhalds og endurbóta á sérhæfðum búnaði í húsinu. Hann segir jafnframt greinilegt að starfsfólkið hafi glattst við að hittast á ný eftir sumarfrí, margir eldsprækir til starfa og sumarið verði án efa rætt á næstu kaffitímum.

Meðfylgjandi mynd er af vef Samherja og sýnir fiskvinnslufólk á Dalvík.

Deila: