Þorskafli hjá austfjarðatogurunum

Deila:

Samkvæmt frétt á vef Síldarvinnslunnar lönduðu Vestmannaeyjatogararnir Bergey VE og Vestmannaey VE báðir nánast fullfermi í Neskaupstað í morgun, á sama tíma og Gullver NS landaði tæpum 100 tonnum á Seyðisfirði. Aflinn reyndist að mestu þorskur en lítið var um ýsu.

Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey, sagði aflann ágætan en að ýsan hefði reynst torsótt. „Við leituðum sérstaklega að ýsu á Gerpisflaki en með litlum árangri. Það er oft erfitt að finna hana seinni partinn í ágúst,“ sagði hann og bætti við að næstu túrar myndu líklega beinast að öðrum miðum.

Jón Valgeirsson, skipstjóri á Bergey, tók í sama streng. „Þetta er nánast eingöngu þorskur en okkur gekk illa að finna ýsu. Það var þó mokveiði undir lokin og fengum við góðan þorsk.“

Hjálmar Ólafur Bjarnason, skipstjóri á Gullver, sagði aflann hafa verið þokkalegan en undir væntingum. „Við vorum allan tímann að reyna að fá ýsu en það gekk erfiðlega. Mest var um þorsk en einnig dálítið af ýsu og karfa,“ sagði hann.

Skipin halda öll til veiða á ný síðar í dag og í kvöld.

Deila: