Blængur NK landar í Hafnarfirði – fer í slipp

Deila:

Í dag er landað úr frystitogaranum Blængi NK í Hafnarfirði að lokinni síðustu veiðiferð skipsins á kvótaárinu. Aflinn nam um 650 tonnum upp úr sjó og er verðmæti hans metið á 328 milljónir króna. Frá þessu er sagt á vef Síldarvinnslunnar.

Skipstjórinn, Sigurður Hörður Kristjánsson, segir að túrinn hafi gengið vel og veðrið verið einstaklega hagstætt. „Við vorum mest á Halanum og fengum mjög góða ufsaveiði, auk karfa og þorsks. Vinnslan um borð var samfelld og skilaði um 20 tonnum af frystum afurðum á dag,“ segir hann.

Að lokinni löndun verður Blængur tekinn í slipp í Reykjavík þar sem farið verður í hefðbundið viðhald, meðal annars málun og vélarupptekt. Gert er ráð fyrir að slippdvölin standi yfir í um mánuð.

Deila: