Meirihluti hefur áhyggjur af stöðu laxastofnsins

Deila:

Meirihluti landsmanna hefur áhyggjur af stöðu íslenska laxastofnsins samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Niðurstöðurnar sýna að 56% aðspurðra segjast hafa miklar áhyggjur af því að laxastofninn sé í hættu, en 23% hafa litlar eða engar áhyggjur.

Athygli vekur að Vestfirðingar skera sig úr í niðurstöðunum. Þar sögðust 47% hafa litlar áhyggjur af stöðunni og 16% alls engar. Þetta er munur á viðhorfum miðað við aðra landshluta, þar sem áhyggjurnar mældust meiri.

Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu dagana 18.–21. ágúst 2025. Alls tóku 1.423 manns þátt, á aldrinum 18 ára og eldri, af öllum landshlutum. Úrtakið er vegið samkvæmt gögnum Þjóðskrár þannig að það endurspegli þjóðina eftir kyni, aldri, menntun og búsetu.

Deila: