Verðlaun fyrir besta básinn á AquaNor

Stærsta fiskeldissýning heims, AquaNor, var haldin í Þrándheimi í síðustu viku. Um 25 þúsund gestir sóttu sýninguna og sýnendur voru um 300 talsins frá öllum heimshornum. Frá þessu segir í tilkynningu frá Hampiðjunni.
Hampiðjan tók að sögn virkan þátt í sýningunni með fjórum dótturfyrirtækjum sínum; Mørenot Aquaculture, Vonin Refa, Fiizk Protection og Swan Net Gundry. Alls stóðu um 40 starfsmenn frá átta löndum vaktina á básum fyrirtækjanna, sem endurspeglar alþjóðlega starfsemi samstæðunnar.
Athygli vakti á bás Mørenot þar sem kynntar voru nýjungar í fiskeldisbúnaði sem hafa verið þróaðar frá því Hampiðjan eignaðist fyrirtækið árið 2023. Þar á meðal voru:
-
MarWall – hálflokuð kví með niðurdælingu súrefnisríks sjávar sem ver laxinn gegn lús og bætir velferð hans.
-
MarDeep – niðursökkvanleg kví sem liggur 20–25 m undir yfirborði, þar sem umhverfisaðstæður eru hagstæðari fyrir laxinn.
-
BioSeize kerfið – safnar úrgangi og óætu fóðri úr kvínni til endurnýtingar og áburðarvinnslu.
Verðlaun fyrir besta básinn
Bás Mørenot vakti ekki aðeins athygli fyrir tækninýjungar heldur einnig fyrir framsetningu sína og hlaut fyrirtækið verðlaun fyrir besta bás sýningarinnar – viðurkenningu sem þykir afar eftirsótt á AquaNor.
Hjörtur Erlendsson, forstjóri Hampiðjunnar, segir í tilkynningunni að viðtökurnar hafi verið langt fram úr væntingum:
„Starfsmenn okkar voru stoltir og glaðir yfir árangrinum og við sjáum að áhersla okkar á vöruþróun í fiskeldi er þegar farin að skila sér. Að fá viðurkenningu fyrir besta básinn kórónaði þessa frábæru sýningu.“
Thomas Myrvold, framkvæmdastjóri Mørenot Aquaculture, tekur í sama streng:
„Þátttakan styrkti stöðu okkar sem leiðandi í fiskeldistækni. Nýju lausnirnar okkar fengu mjög jákvæð viðbrögð og við sjáum fram á að geta aukið skilvirkni og afköst viðskiptavina okkar á komandi árum.“


