Haustmælingar á loðnustofni hafnar

Haustmæling Hafrannsóknastofnunar og Náttúruauðlindastofnunar Grænlands á loðnustofninum hófst 23. ágúst og stendur til 22. september. Grænlenska rannsóknaskipið Tarajoq er þegar komið til starfa og mun Árni Friðriksson bætast í leiðangurinn 6. september. Skipin munu samanlagt sigla um 7.850 sjómílur.
Markmið mælinganna er að meta magn bæði ókynþroska og kynþroska loðnu á svæðinu milli Íslands, Austur-Grænlands og Jan Mayen. Jafnframt er safnað gögnum um plöntusvif, dýrasvif, aðrar uppsjávartegundir og umhverfisþætti á borð við hita, seltu og strauma. Í ár taka einnig fjórir hvalatalningarmenn þátt í verkefninu, tveir á hvoru skipi.
Niðurstöður mælinganna verða kynntar um miðjan október og þá mun Hafrannsóknastofnun gefa út endurskoðaða ráðgjöf um loðnuveiðar á komandi fiskveiðiári 2025/2026.
