Staðan ekki metin alvarleg

Deila:

Matvælastofnun, Fiskistofa og Hafrannsóknastofnun hafa síðustu daga unnið að rannsóknum á meintum eldislöxum í ám á Vestur- og Norðurlandi.

Alls hafa 19 laxar verið sendir í erfðagreiningu. Niðurstöður fyrir 11 laxa úr Haukadalsá, sem veiddust 14. og 15. ágúst, liggja nú fyrir. Þar reyndust átta laxar villtir en þrír úr eldi. Enn eru átta fiskar í greiningarferli, þar af sjö sem norskir kafarar söfnuðu.

Staðan er ekki talin alvarleg að svo stöddu þar sem fáir eldislaxar hafa greinst. Stofnanirnar leggja þó áherslu á mikilvægi vöktunar og hvetja veiðimenn til að fylgjast sérstaklega með eldiseinkennum á veiddum fiski. Ef slíkir laxar veiðast er óskað eftir því að þeir séu skilaðir í heilu lagi til Hafrannsóknastofnunar til rannsókna.

Frekar verður upplýst um málið eftir því sem ný gögn liggja fyrir eða ef mat á stöðunni breytist.

Deila: