Áhersla á aðrar tegundir en þorsk

Deila:

Togararnir í Síldarvinnslusamstæðunni leggja nú mikla áherslu á að veiða aðrar tegundir en þorsk, einkum ufsa. Það hefur þó gengið erfiðlega að undanförnu, samkvæmt heimasíðu Síldarvinnslunnar.

Bergey VE landaði fullfermi í Vestmannaeyjum á mánudagsmorgun. Að sögn Jóns Valgeirssonar skipstjóra fékkst góður afli í Lónsbugt, mest þorskur og ufsi auk karfa og ýsu. „Það sem skipti kannski mestu máli var að fá ufsann því hann reynist okkur býsna erfiður,“ sagði hann.

Jóhanna Gísladóttir GK landaði 55 tonnum í Grindavík. Einar Ólafur Ágústsson skipstjóri sagði aflann mestan ufsa, síðan ýsu og þorsk, eftir erfiða leit á ýmsum miðum.

Vestmannaey VE landaði í Eyjum á þriðjudagsmorgun með fullfermi. Um 40% aflans var þorskur en einnig fékkst ýsa, ufsi, karfi, steinbítur og koli. „Það var semsagt talsvert haft fyrir þessu,“ sagði skipstjórinn Birgir Þór Sverrisson.

Gullver NS landaði 102 tonnum á Seyðisfirði, mest blönduðum afla. Skipverjar voru víða, m.a. á Gauraslóð og í Lónsbugt.

Allir togararnir eru nú aftur komnir til veiða nema Gullver, sem heldur út á laugardag.

Deila: