Vaðandi síld inni á fjörðum

Deila:

Að undanförnu hefur mikið sést af síld í Austfirði og einnig hafa borist fréttir af síld í fjörðum á Norðurlandi. Síldarvinnslan greinir frá því á vef sínum að líklegt sé að um sé að ræða norsk-íslenska vorgotssíld.

Hrafn Bjarnason, verkefnastjóri hjá Síldarvinnslunni, veiddi fimm síldar úr torfu á Norðfirði til nánari skoðunar. Karl Rúnar Róbertsson, gæðastjóri í fiskiðjuveri fyrirtækisins, skoðaði síldina og sagði hana vera á bilinu 250–350 grömm að þyngd með fituinnihald 17–18%. Hann benti á að síldin væri vel haldin og með hrogn og svil, sem bendi til þess að hún sé norsk-íslensk síld.

Síldveiðar eru þegar hafnar austur af landinu og kom Jón Kjartansson SU til Eskifjarðar á sunnudagskvöld með 1.250 tonn af síld.

Myndin er af vef Síldarvinnslunnar og sýnir fimm síldar úr torfu á Norðfirði.

Deila: