Sóttu skipverja við erfiðar aðstæður

Deila:
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst beiðni um aðstoð frá skipstjóra rússnesks fiskiskips sem var statt djúpt norðaustur af Langanesi og utan íslenskrar efnahagslögsögu, vegna veikinda eins skipverjans um borð. Frá þessu segir á Facebook-síðu gæslunnar.
Þar segir að eftir samráð við lækni hafi verið talið nauðsynlegt að koma þyrfti manninum undir læknishendur á Íslandi. Varðstjórar í stjórnstöðinni báðu skipstjórann að sigla nær landi og inn í íslenska efnahagslögsögu.
„Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út um kvöldmatarleytið í gær og flaug til að byrja með til Þórshafnar þar sem áhöfnin hvíldist á meðan skipið sigldi nær landi. Klukkan 4:30 tók þyrlusveitin á loft frá Þórshöfn. Afar slæmt skyggni var á staðnum þar sem fiskiskipið og þyrlusveitin mættust en þrátt fyrir þessar krefjandi aðstæður gengu hífingar vel. Þegar þeim var lokið var flogið með skipverjann á Sjúkrahúsið á Akureyri en þar lenti þyrlan á sjöunda tímanum í morgun. Þessu langa verkefni lauk svo þegar þyrlan lenti á Reykjavíkurflugvelli á tíunda tímanum í morgun,” segir í færslunni.

Deila: