Eldur í bát við Tjörnes

Snemma í morgun, upp úr hálf fimm, var björgunarsveitin á Húsavík ásamt björgunarbátnum Villa Páls boðuð út á hæsta forgangi vegna tilkynningar frá smærri fiskibát sem var þá staddur norður af Tjörnesi um eld í brú bátsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbjörgu.
Þar segir að strax í kjölfarið hafi björgunarskipið Gunnbjörg á Raufarhöfn verið boðað út og skömmu síðar var björgunarskipinu Sigurvin frá Siglufirði bætt við. Fljótlega eftir tilkynningu skipverja komu þó frá þeim þær fréttir að þeim hefði að öllum líkindum tekist að slökkva eldinn og myndu halda í átt til Húsavíkur á rólegri siglingu.
Villi Páls flutti fimm slökkviliðsmenn frá Húsavík að bátnum og í kjölfarið fór Flatey ÞH með 3 aðra slökkviliðsmenn og búnað frá Húsavík, að því er fram kemur í tilkynningunni.
Þegar klukkan var fimmtán mínútur í sex í morgun komu fyrstu bjargir á vettvang og fóru slökkviliðsmenn úr Villa Páls um borð í bátinn. Enginn eldur fannst, né óeðlilegur hiti um borð.
Þá var dregið úr viðbúnaði og Sigurvin og Gunnbjörgu snúið við til heimahafnar.
