Hægt að sækja um veiðar á ígulkerjum

Fiskistofa hefur opnað fyrir umsóknir um veiðar á ígulkerjum. Veiðarnar eru nú leyfðar á á afmörkuðum svæðum í Ísafjarðardjúpi, Húnaflóa og á Austurlandi. Krókaaflmarksbátum með leyfið er heimilt að veiða ígulker með plógi.
Gefin hefur verið út heildarafli fyrir hvert svæði. Þegar leyfilegum heildarafla hvers svæðis hefur verið náð mun Fiskistofa loka því svæði fyrir frekari veiðum.
Hægt er að kynna sér nánar tilhögun veiðanna í grein um ígukeraveiðileyfi á síðu Fiskistofu.
Hagnýtar upplýsingar
-
Sótt er um leyfi til veiðanna í gegnum umsóknarkerfi Fiskistofu á Ísland.is.
-
Einstaklingur sem skráður er útgerðaraðili eða prókúruhafi útgerðaraðila getur sótt um leyfi með rafrænum skilríkjum.
-
Til að fá leyfi til veiða á ígulkerum verður skip að hafa leyfi til veiða í atvinnuskyni.
-
Leyfið kostar 22.000 kr. og greitt er fyrir leyfið í umsóknarferlinu.